Íþróttamaður Æskunnar 2004 var Ólöf Línberg Kristjánsdóttir Ólöf náði góðum árangri á árinu, einkum í stökkum. Ólöf varð Íslandsmeistari í 14 ára flokki í langstökki, stökk 4,98 m, meðvindur 2,6 m/s. Sömuleiðis varð Ölöf unglingalandsmótsmeistari í langstökki á unglingalandsmótinu sem haldið var á Sauðárkróki og stökk hún þar 4,68 m í 2,8 m/s meðvindi. Ólöf stökk tvisvar yfir 1,50 m í hástökki um sumarið, bæði á Sumarhátíð UÍA og á Akureyrarmóti UFA. Hún vann til silfurverðlauna á MÍ í hástökki og stökk þar yfir 1,45 m. |