sögubrot
Stjórnir Æskunnar
Í stjórn æskunnar hafa verið:
Formenn 1. Tryggvi Kristjánsson Meyjarhóli 1903-1905 og 1906-1909 2. Jóhann Geir Jóhannsson Veigastöðum 1905-1906 3. Ferdinand Kristjánsson Meyjarhóli 1909 Gjaldkerar 1. Haraldur Guðmundsson Halllandi 1903-1905 2. Ferdinand Kristjánsson Meyjarhóli 1950-1909 3. Friðbjörn Níelsson Halllandi 1909-1910 4. Aðalsteinn Halldórsson Geldingsá 1910 Ritarar 1. Elínbjörg Baldvinsdóttir Veigastöðum 1909 2. Tryggvi Kristjánsson Meyjarhóli varð ritari á árinu 1909. Hann færði einnig inn í bók allar eldri fundargerðir félagsins, en þá höfðu verið valdir ritarar fyrir hvern einstakan fund. Frá 9. maí 1903 til 9. mars 1910 voru meðlimir Æskufélagsins 15 karlmenn og 6 konur eða alls 21. Fundir voru 30 á tímabilinu , haldnir á Veigastöðum 1, Halllandi 8, Halllandsnesi 4, Meyjarhóli 15, Geldingsá 2. Rædd voru 46 mál, verða þau talin í málaskrá. |
Fyrstu lög Æskunnar
Fyrstu lög félagsins
1. gr Félagið heitir Æskan 2. gr Tilgangur félagsins er að koma saman til æfinga í því að ræða ýmis málefni og einnig til þess að skemmta sér á ýmsan hátt. 3. gr Í félagið mega eigi ganga eldri drengir en 16 ára og ekki yngri en 8 ára. 4. gr Engar stúlkur skulu vera í félaginu. 5. gr Allir fundarmenn verða að tala í hverju málefni, sem á fund koma. Árið 1903 var samþykkt að félagsmenn greiði 10 aura félagsgjald á ári. Hélst það óbreytt meðan félagssvæðið voru fjórir bæir. Þá kom fram tillaga um að taka konur í félagið, en hún var felld. Ári síðar eða 15/5 1904 var samþykkt að konur hefðu aðgang að félaginu, jafnt og karlmenn. Síðan hefur ríkt jafnrétti kynjanna í félagsskapnum. |
Upphaf Æskunnar
Formáli
Tekinn úr I. Bindi gjerðarbókanna.
Jeg ætla með fáum orðum að skýra frá tildrögum til stofnunnar Æskufélagsins og starfsemi þess áður en fundargjörðir þess voru skrifaðar, ef vera kynni að þessi bók, kæmi einhverntíma fyrir almenningssjónir. Félagið Æskan var stofnað þann 31. Maí 1903. Stofnendur þess voru fimm drengir, þeir:
Nokkur fyrirfarandi ár komu þessir drengir oft saman til þess að leika sér, eins og algengt er í sveitum. Meðal annars sem þeir ræddu þá um, var að stofna félag. Höfðu þeir heyrt getið um skemmtileg félög í sveitinni, sem þeir ýmissa orsaka vegna gátu ekki verið með í. Sú löngun varð alltaf meiri og sterkari hjá þeim að stofna málfunda og skemmtifélag, fyrir drengi á þessum fjórum fremstu bæjum sveitarinnar; Geldingsá, Meyjarhóli, Halllandi og Veigastöðum. Árið 1902 komst það á að haldnir voru fundir, þó ekkert væri skrifað af því sem rætt var og var það mest fyrir óþroskaðan skilning og fákunnáttu félagsmanna. En þeir sáu brátt að ekki mátti við það una og að nauðsynlegt væri að skrifa, það sem gerðist á fundunum, og gefa félaginu nafn. Gáfu þeir því nafnið Æskan. Ennfremur ákváðu þeir á undirbúningsfundum undir stofnfund, að hann skyldi vera 9. maí 1903 og þá skyldi fyrsta fundargerðin vera skrifuð. Eftir það sýna fundargerðirnar starfsemi félagsins, svo ekki verður farið um þetta fleiri orðum hér. Meyjarhóli. 22.12 1909 Tryggvi Kristjánsson |